Við erum hreyfiafl þróunar & vaxtar
Hjá Langasjó starfar öflug liðsheild sem sameinar nýsköpun, reynslu og virðisaukandi lausnir í matvælaframleiðslu og húsnæðisuppbyggingu. Við vinnum markvisst að því að skapa tækifæri og styðja við sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi. Með því að efla heimili, atvinnulíf og innviði tökum við virkan þátt í að móta framtíðina sem hreyfiafl vaxtar, framfara og samfélagslegrar ábyrgðar.
Dóttur- og hlutdeildarfélög
-
Mata hf.er leiðandi fyrirtæki í sölu og dreifingu ávaxta og grænmetis til verslana, veitingastaða og mötuneyta á Íslandi.
-
Salathúsið ehf. var stofnað árið 1991 og hefur frá upphafi verið í fararbroddi á Íslandi í framleiðslu ferskra og bragðgóðra matvæla.
-
Matfugl ehf. hóf rekstur 14. nóvember 2003. Afurðir fyrirtækisins eru hrár, ferskur kjúklingur auk fullunninnar vöru sem eru seldar um allt land.
-
Síld og fiskur ehf. framleiðir og selur fjölbreyttar matvörur undir vörumerkinu Ali, sem er eitt þekktasta og rótgrónasta vörumerki landsins.
-
Alma íbúðafélag hf. er sjálfstætt fasteignafélag í eigu Langasjávar ehf. og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu og rekstri íbúðarhúsnæðis á Íslandi.
-
Verkgarðar ehf. sérhæfir sig í þróun, hönnun og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Einnig sinnir félagið fasteignaþróunar verkefnum innan samstæðu Langasjávar.
-
Freyja ehf. er elsta starfandi sælgætisgerð landsins og hefur verið ómissandi hluti af íslenskri sælgætismenningu í yfir heila öld.
-
Eik fasteignafélag var stofnað árið 2002 sem sérhæft fyrirtæki í eignarhaldi og útleigu á atvinnuhúsnæði | ~34% eignarhlutfall.
-
Brimgarðar er íslenskt einkahlutafélag sem sérhæfir sig í rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Auk þess sinnir félagið lánastarfsemi og öðrum fjárfestingum.
-
Fjallasól sérhæfir sig útleigu á atvinnuhúsnæði auk uppbyggingu, kaup og sölu fasteigna og lóða. Þá fjárfestir félagið einnig í arðbærum atvinnurekstri.
-
Hlutverk Nes þróunarfélags er uppbygging, kaup og sala fasteigna.
-
Ylma ehf. var stofnað árið 2015 og sérhæfir sig í skammtímaútleiga húsnæðis fyrir einstaklinga.
Fjölmiðlatorg
Hér má finna kynningarefni og vörumerki Langasjávar í ýmsum útgáfum og litavali.
Allt efnið er hannað með samræmda ímynd fyrirtækisins í huga og má nota í kynningar, markaðsefni og önnur samskipti þar sem vörumerkið kemur fram. Heimilt er að nota merkið í þeim útgáfum og litum sem hér eru birt sé gætt að réttri notkun í samræmi við leiðbeiningar um vörumerkjastíl.
Lykiltölur
Heildartekjur samstæðunnar árið 2023
15,75 milljarðar kr.
Fjöldi starfsmanna
450
Heildareignir samstæðu
134,5 milljarðar kr.
Hafa Samband
Ertu með fyrirspurn eða vilt þú heyra frá okkur? Fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband við þig eins fljótt og auðið er.
📞 Sími: 412-1350 ✉️ Netfang: langisjor@langisjor.com